Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um úthlutun orlofshúsa fyrir eftirfarandi tímabil:

Sumar innanlands: tímabilið 27. maí - 30. september 2024. Athugið að nýja orlofshús félagsins að Þórsstíg 28 verður leigt út frá og með 1. júlí 2024 og kostar vikuleiga 35.000 kr. í sumar. Verð á öðrum orlofskostum innanlands í sumar (Munaðarnes og Akureyri) helst óbreytt, 23.000 kr. vikan.

Jól og áramót Tenerife: tímabilið 17. desember 2024 til 7. janúar 2025. Athugið að vegna þess hvernig jólafrídagarnir koma út næst verður í boði 3ja vikna leiga nú um jólin sem kostar 147.000 kr. 

Páskar Tenerife: tímabilið 15. - 29. apríl 2025

Kjörstjórn félags flugmálastarfsmanna ríkisins auglýsir nú eftir framboðslistum til stjórnarkjörs FFR árið 2024.

Listum skal skila til kjörstjórnar félagsins eigi síðar en 28. mars 2024 með tölvupósti á netfangið: kjorstjorn@flugstarfsmenn.is

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um úthlutun vegna orlofsíbúðar félagsins á Tenerife, sumarið 2024

Til þess að sækja um úthlutun skrá félagsmenn sig inn á orlofsvef Félags Flugmálastarfsmanna ríkisins og velja UMSÓKN UM ÚTHLUTUN.

Félagsmenn geta sent inn allt að 3 valmöguleika í umsókninni.

Leigutími er 2 vikur frá þriðjudegi til þriðjudags.

Leiguverð er 70.000 kr. fyrir tvær vikur, auk 36 punkta af punktainneign félagsmanns. Athugið að við brottför skilja félagsmenn 100 evrur eftir sem greiðslu fyrir þrifum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2024. Úthlutun fer fram 2. febrúar

Vinsamlegast athugið að félagið endurgreiðir ekki dvöl sem félagsmaður hefur greitt. Ef félagsmaður þarf að aflýsa ferð og getur ekki nýtt leigu íbúðarinnar t.d. vegna veikinda er mönnum bent á að hafa samband við sitt tryggingafélag um bætur.

Óheimilt er með öllu að framleigja íbúðina öðrum eða að leigja hana fyrir aðra. Íbúðin er einungis ætluð félagsmönnum og þeim sem hann ákveður að bjóða með sér til dvalarinnar. Við afhendingu lykla þarf félagsmaður að framvísa leigusamning og vegabréfi eða öðrum skilríkjum.

Vikan 20. - 27. febrúar var að losna til bókunar á orlofsvef FFR. Fyrstur kemur fyrstur fær. 

 

Félagsmenn FFR sem eru sumarstarfsmenn hjá Isavia geta sótt um styrk fyrir skólagjöldum. Styrkurinn er að hámarki 30.000 kr. og nemur styrkur aldrei hærri upphæð en útlagður kostnaður. Rafræn umsókn þarf að berast félaginu fyrir 1. september og þarf kvittun fyrir útlögðum kostnaði að fylgja með.

Styrkir verða greiddir út fyrir lok september 2024. Félagið áskilur sér rétt til þess að hafna umsóknum ef þær uppfylla ekki ofangreind skilyrði.

Opnað verður fyrir bókanir á orlofseignum innanlands þann 30. ágúst kl. 14:00. Tímabilið sem um ræðir er frá 2. október 2023 til 1. maí 2024 og gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

Bendum einnig á að það eru 2 lausar vikur í orlofseign félagsins á Tenerife í nóvember. Athugið að þeir sem hafa þegar bókað viku geta ekki bókað aðra.

Orlofsvefur FFR