Fréttir

Opið fyrir umsóknir um úthlutun

TenerifeTil þess að sækja um úthlutun skrá félagsmenn sig inn á orlofsvef Félags Flugmálastarfsmanna ríkisins og velja TENERIFE SUMAR 2020.

Félagsmenn geta sent inn allt að 3 valmöguleika í umsókninni.

Leigutími er 2 vikur frá miðvikudegi til miðvikudags.

Leiguverð er 70.000 kr. fyrir tvær vikur, auk 36 punkta af punktainneign félagsmanns.

Athugið að við brottför skilja félagsmenn 100 evrur eftir sem greiðslu fyrir þrifum. 

Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar 2020.

Nánar um eignina á orlofssíðu FFR

Þrátt fyrir að samningaviðræður hafi dregist á langinn hefur Isavia ákveðið að uppfæra upphæð desemberuppbótar starfsmanna til samræmis við hækkun í samningum á almenna markaðnum. Starfsmenn í fullu starfi fá því greiddar 92.000 kr. í desemberuppbót um næstu mánaðarmót.

Ágætu félagsmenn,

Við viljum vekja athygli ykkar á því að opnað verður fyrir bókanir í orlofshúsum innanlands fyrir vetrartímabilið 2019-2020 þann 26. júlí kl. 12:00. 

Sótt er um í gegnum orlofssíðu félagsins http://orlof.is/ffr/ og nota þarf Íslykil eða rafræn skilríki til þess að skrá sig inn.

Engir punktar eru teknir af vetrarleigu og fyrstur kemur - fyrstur fær.

Lágmarkskostnaður: 4.000 kr.

Helgarleiga: 13.000 kr.

Aukadagur (virkur dagur): 2.000 kr.

Vikuleiga: 22.000 kr.

Gengið hefur verið frá samkomulagi um endurskoðun á viðræðuáætlun FFR við SA/Isavia. 

Í samkomulaginu kemur fram að aðilar stefni á að ná samningum fyrir 15. september. Þar er einnig fjallað um skipulag viðræðna og vinnubrögð. Viðræður liggja niðri um þessar mundir en verða teknar upp að nýju í ágúst. 

Aðilar sammælast um að á gildistíma framlengdrar viðræðuáætlunar ríki friðarskylda. Með hliðsjón af því svo og þess að aðilar eru sammála um að sá tími sem var ætlaður til viðræðna um endurnýjun kjarasamnings hafi verið vanmetinn.

Aðilar eru ásáttir um að innágreiðsla/fyrirframgreiðsla að upphæð 105.000 kr. verði greidd hverjum fastráðnum starfsmanni miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 31. ágúst 2019. 

Greiðslan kemur til útborgunar 1. ágúst 2019. 

Það er sameiginlegur skilningur aðila að ofangreind fjárhæð sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga hins endurnýjaða kjarasamnings og verði metin sem hluti kostnaðaráhrifa hans.

 

Samninganefnd FFR

Við vekjum athygli ykkar á því að næsta vika er laus í Vestmannaeyjum. Örugglega einhver sem getur nýtt sér það í þeirri fádæma veðurblíðu sem nú gengur yfir Suðurlandið. Húsið losnar meira að segja laugardaginn 15. júní ef einhver vill nýta sér það og ná rúmlega vikudvöl en greiða einungis vikuleigu fyrir!

Sumarkveðjur frá orlofshúsakónginum

Félaginu hafa borist fyrirspurnir af stöðu viðræðna félagsins við SA/Isavia og er það okkur ánægja að segja frá því að viðræður eru í fullum gangi um þessar mundir.

Þegar höfum við setið 7 samningafundi og góður gangur er í viðræðum. Næsti fundur er fyrirhugaður á miðvikudaginn.

Samninganefnd FFR