• m4
  • m6
  • m1
  • m-532
  • Mynd1
  • m-531
  • m8
  • m2
  • m9
  • m7
  • m-530
  • m3
  • m5

Þriðjudagur 23. apríl 2024


styrkirogendurmenntun

Orlofshus

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR), SFR stéttarfélag í almannaþjónustu og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hafa verið í samningaviðræðum við Isavia undanfarnar vikur um gerð nýs kjarasamnings. Félögin vísuðu málinu til ríkissáttasemjara eftir að fullreynt var að ekki næðist saman milli félaganna og Isavia. Undir handleiðslu ríkissáttasemjara hefur verið unnið að samningsgrunni sem félögin töldu að hægt væri að byggja hugsanlegar viðræður og samkomulag á. Í dag hefur félögunum hins vegar borist fréttir af því frá viðsemjanda að til þess að vinna frekar á þeim samningsgrunni yrði sett það skilyrði að samningurinn yrði lengdur verulega  eða um 7 mánuði, sem þýddi að samningstíminn væri þá orðinn 19 mánuðir. Þetta skilyrði er algjörlega óásættanlegt að mati samninganefnda félaganna. Staðan er því sú að kjarasamningsviðræðurnar eru komnar í algjöran hnút og því hafa samninganefndir félaganna lagt  til við stjórnir þeirra að efna til allsherjar atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum hjá Isavia um boðun aðgerða.

Boðað er til baráttufundar í Andrews leikhúsinu á Ásbrú fimmtudaginn 27.mars n.k. kl. 17:30 og í Reykjavík í bíósal Hótel Natura, áður Hótel Loftleiðir kl. 12:00 föstudaginn 28.mars n.k.