Styrktarsjóður BSRB
Styrktarsjóði BSRB er ætlað að greiða bætur til sjóðsfélaga í slysa- og veikindatilvikum eftir að veikindarétti lýkur hjá vinnuveitanda. Sjóðurinn styrkir einnig fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum. Styrktarsjóður BSRB var stofnaður í desember 2001 og hóf reglulega starfsemi í febrúar 2002. Innheimta iðgjalda hófst 1. janúar 2001. Tekjur sjóðsins árið 2010 voru 0,75% af heildarlaunum þeirra starfsmanna sem undir sjóðinn heyra. Aðildarfélög að styrktarsjóðnum eru öll félög BSRB (þ.m.t. FFR) nema SFR, Landsamband lögreglumanna og Póstmannafélag Íslands.