Opnað hefur verið fyrir umsóknir um úthlutun vegna orlofsíbúðar félagsins á Tenerife, sumarið 2025
Til þess að sækja um úthlutun skrá félagsmenn sig inn á orlofsvef Félags Flugmálastarfsmanna ríkisins og velja Umsókn um úthlutun.
Félagsmenn geta sent inn allt að 3 valmöguleika í umsókninni.
Leigutími er 2 vikur frá þriðjudegi til þriðjudags.
Leiguverð er 98.000 kr. fyrir tvær vikur, auk 36 punkta af punktainneign félagsmanns.
Vinsamlegast athugið að félagið endurgreiðir ekki dvöl sem félagsmaður hefur greitt. Ef félagsmaður þarf að aflýsa ferð og getur ekki nýtt leigu íbúðarinnar t.d. vegna veikinda er mönnum bent á að hafa samband við sitt tryggingafélag um bætur.
Óheimilt er með öllu að framleigja íbúðina öðrum eða að leigja hana fyrir aðra. Íbúðin er einungis ætluð félagsmönnum og þeim sem hann ákveður að bjóða með sér til dvalarinnar. Við afhendingu lykla þarf félagsmaður að framvísa leigusamning og vegabréfi eða öðrum skilríkjum.