Kæru félagsmenn,
Sumarið 2025 verður svokallaður sumarglaðningur ekki í boði. Félagið mun bjóða upp á bæði útilegukort og ferðaávísun (hótelmiðar) eins og áður. Hvetjum öll til þess að kynna sér framboð og kjör á félagavef. Minnum einnig á að félagsmenn geta keypt niðurgreidd gjafabréf í flug hjá Icelandair.
Sérstök ábending er ætluð sumarfólkinu okkar eins og áður sem getur sótt um skólastyrk í haust. Hnappurinn fyrir umsóknina verður aðgengilegur á heimasíðu félagsins þegar nær dregur.