• m9
  • m-530
  • m1
  • m-531
  • m6
  • m8
  • m5
  • m2
  • m3
  • m4
  • m-532
  • Mynd1
  • m7

Fimmtudagur 09. maí 2024


styrkirogendurmenntun

Orlofshus

skolastyrkur

Fréttir

Boðað er til kynningarfunda félagsmanna FFR á nýjum kjarasamningi 2024 með eftirfarandi hætti.
Föstudaginn 10. maí
Kl.13:00 í þjónustuhúsi flugvallarþjónustunnar, 2. hæð
Kl.15:00 á Eiríksstöðum, 3. hæð í flugstöð
Kl.17:30 í húsi BSRB á Grettisgötu 89
Laugardaginn 11. maí
Kl.11:00 á Egilsstöðum
Kl.16:00 á Akureyri
Endilega látið félagsfólk vita og ekki hika við að senda okkur póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ef ykkur vantar upplýsingar fyrir atkvæðagreiðslu.
Félagsfólk okkar á öðrum stöðum landsins fá kynningarfundi í gegnum síma eftir samkomulagi og í samstarfi við okkur eftir því sem hentar. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst með tíma sem hentar þeim starfsstöðvum.
Við erum enn að vinna í því að skipuleggja rafræna atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn og þar sem frídagur í dag setur svolítið strik í reikninginn höfum við fyrirvara um mögulegar breytingar en fyrstu drög segja að rafræn atkvæðagreiðsla hefjist næsta mánudag kl. 16:00 og henni muni ljúka kl. 16:00 næsta fimmtudag. Endanlegt skipulag verður auglýst á morgun og mun einnig liggja klárt fyrir á kynningarfundunum.
Kær kveðja, Samninganefnd FFR

Niðurstöður kosningar um boðun yfirvinnubanns, þjálfunarbanns og tímabundinna og tímasetta vinnustöðvana hjá Isavia

 

 

Samningnefndir FFR og Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu ákváðu á fundi gær að boða til yfirvinnu- og þjálfunarbanns ásamt tímabundnum og tímasettum aðgerðum við öryggisleit og farþegaflutninga eftir að samtöl stéttarfélaganna við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd ISAVIA ohf. reyndust árangurslaus.

Samningaviðræður hafa staðið síðan í september 2023 og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara þann 8. apríl sl. Í gær 28. apríl var orðið ljóst að ekki væri lengra komist í samtalinu við SA fyrir hönd ISAVIA ohf.

Á félagsfundi sem haldin var þann 11. apríl sl. var samþykkt einhuga meðal félagsfólks að reyna með aðgerðum að ná fram kröfum félaganna. Kröfurnar snúa fyrst og fremst að því að ná fram samræmingu á réttindum milli gildandi kjarasamninga innan ISAVIA ohf. og dótturfélaga. Einnig snúa kröfurnar að því að ná fram leiðréttingu á framkvæmd kjarasamninga frá síðustu samningalotu.

Félagsfólk stéttarfélaganna tveggja munu kjósa um aðgerðir sem hefjast eiga þann 9. maí næstkomandi að gefnu samþykki félagsfólks. Atkvæðagreiðsla um aðgerðir hefst í dag kl. 13:00 og lýkur kl. 13:00 fimmtudaginn 2. maí.

Smelltu hér til að taka þátt í kosningunni.