Aðalfundur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins verður haldinn fimmtudaginn 20. júní kl. 17:30.
Fundurinn fer fram í samkomusal á 1. hæð í húsi BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
Dagskrá fundar
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningar FFR 2023 lagðir fram til úrskurðar
- Kjöri stjórnar og varamanna lýst
- Tveir félagslegir skoðunarmenn reikninga kjörnir og einn til vara
- Félagsgjöld fyrir næsta starfsár ákveðin
- Önnur mál
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna!