Aðalfundur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins verður haldinn fimmtudaginn 1. mars kl. 19:00.
Fundurinn fer fram í samkomusal BSRB á jarðhæðinni að Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
Dagskrá fundar
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningar FFR 2017 lagðir fram til úrskurðar
- Lagabreytingatillögur
- Kjöri stjórnar og varamanna lýst
- Tveir félagslegir skoðunarmenn reikninga kjörnir og einn til vara
- Félagsgjöld fyrir næsta starfsár ákveðin
- Önnur mál
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna!