Fréttir

Athugið að dagarnir 25. september til 6. október 2021 eru nú lausir til bókunar í orlofseign okkar á Tenerife. Fyrstur bókar fyrstur fær.

Dagurinn kostar 5000 kr. en bóka verður að lágmarki 7 daga. 

Tilvalið tækifæri til að skella sér í sólina. 

Sjá nánar á orlofsvef FFR

Ágætu félagsmenn,

Við viljum vekja athygli ykkar á því að opnað hefur verið fyrir bókanir í orlofshúsum innanlands og er nú hægt að bóka til og með 23. maí 2022.

Bókanir eru gerðar í gegnum orlofssíðu félagsins. Athugið að nota þarf Íslykil eða rafræn skilríki til þess að skrá sig inn.

Engir punktar eru teknir af vetrarleigu og fyrstur kemur - fyrstur fær.

Lágmarkskostnaður: 4.000 kr.

Helgarleiga: 13.000 kr.

Aukadagur (virkur dagur): 2.000 kr.

Vikuleiga: 22.000 kr.

Tenerife

Athugið, það eru nokkrar vikur lausar til bókunar í september, nóvember og desember. 

Sjá nánar hér

Kæru félagsmenn,

Stjórn félagsins er búin að festa kaupa á stórglæsilegir lóð  Þórsstígur 28, í landi Ásgarðs við Búrfell. 

Lóðin er rétt tæpur hektari að stærð og er í smá hæð í vel grónu umhverfi með einstaklega fallegu útsýni. 

Aðalfundur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins verður haldinn fimmtudaginn 27. maí kl. 18:00.

Fundurinn fer fram á Réttinum, Hafnargötu 90, 230 Reykjanesbæ.

Félagsmenn eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrirfram á fundinn með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Stjórn FFR endurtekur nú leikinn frá því í fyrra í ljósi gríðarlegrar ánægju félagsmanna og býður félagsmönnum aftur lítið eitt endurbættan sumarglaðning í formi niðurgreiðslu gistinátta á gistiheimilum/hótelum, í ferðavögnum, á tjaldsvæðum, í sumarhúsum og/eða í húsbílum innanlands sumarið 2021 (ekki þó í sumarhúsum FFR sem þegar eru niðurgreidd af félaginu). Félagsmenn geta þannig sjálfir fundið bestu mögulegu kjörin án þess að vera bundnir við ákveðin fyrirtæki eins og sala hótelmiða eða útilegukortið krefjast. Athugið að útilegukortið verður EKKI selt á vegum félagsins þar sem sumarglaðningurinn kemur í þess stað. Niðurgreiðsla gistinátta í sumar gildir á orlofstímabili 2021 (tímabilið 15. maí - 30. september 2021).

Niðurgreiðslan er að hámarki 8.000 kr. á dag í allt að 14 daga, þó að hámarki 56.000 kr.  Sá sem nýtir alla niðurgreiðsluna greiðir 28 punkta af punktainneign sinni í orlofskerfi félagsins (hlutfallslega færri punktar miðað við lægri niðurgreiðslu). Athugið að niðurgreiðsla til félagsmanns getur aldrei orðið hærri en útlagður kostnaður hans. Sem dæmi má nefna ef félagsmaður kaupir 7 gistinætur á 5.000 kr. nóttina getur niðurgreiðsla frá FFR ekki orðið hærri en 5.000 kr. per nótt (alls 35.000 kr.).

Búið er að opna fyrir bókanir á þeim vikum í sumar sem eru lausar eftir úthlutun. Gildir nú reglan fyrstur kemur fyrstur fær. 

Sjá lausar vikur á orlofsvef félagsins.